Artíma - Félag listfræðinema við Háskóla Íslands

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Eldorgelið - Safnanótt

Næstu helgi er mikið um að vera í listheiminum.
Á föstudaginn, 23.febrúar, er safnanótt í Reykjavík.

Forskot er tekið á sæluna á fimmtudaginn með opnun franskrar listahátíðar
á Austurvelli. Þá mun franski listamaðurinn Michel Moglia framkvæma
gjörning á Austurvelli sem hann nefnir Eldorgelið. Þetta er mikið
sjónarspil og skemmtilegt um leið og það er virkilega metnaðarfullt
listaverk.
Artíma ætlar að fjölmenna á atburðinn. Hefst kl. 20.

(http://www.fransktvor.is)

Á föstudaginn er svo stórhátíð. Söfn borgarinnar eru opin fram eftir nóttu
og að sjálfsögðu nýtum við tækifærið.

18:00 - 18:45 - söfnumst á Deco

19:00 - Opnun Safnanætur – Listasafns Einars Jónssonar

20.00 - 24.00. Listasafn ASÍ.

21:00 - Kjarvalstaðir. K-þátturinn.

21:30 - Hafnarhús.22.30 Vínsmökkun. Sjóminjasafnið Grandagarði 8.

23.30 - Nýlistasafnið.

24.00 - Deco, áframhaldandi vínsmökkun ;)

Artíma verður í gjafmildu buxunum!

Sjáumst kát
Kveðja
Artíma

ps. Kortin frægu eru nú komin í hús. Svo þeir sem hafa borgað geta nálgast þau hjá stjórnarmeðlimum bæði kvöldin og þeir sem ekki hafa þegar skráð sig fá sérstakan díl á nemendafélagsgjöldum.

7 Athugasemdir:

At 20/2/07 23:04, Anonymous Nafnlaus segir...

Skráð í bæði

 
At 21/2/07 10:06, Anonymous Nafnlaus segir...

Mæti á safnanótt...

 
At 21/2/07 17:51, Anonymous Nafnlaus segir...

Hey! Hvaða gera þessi kort!?

 
At 21/2/07 21:11, Anonymous Nafnlaus segir...

Kortin eru fyrir félaga Artímu, 1500 isk. Ýmis afsláttur og ódýrara á komandi árshátíð... allir skrá sig !

 
At 22/2/07 17:11, Anonymous Nafnlaus segir...

Hellú . . Ef maður er að vinna til miðnættis, má maður samt koma og hitta fólkið?.. eða er það leim?

Harpa

 
At 23/2/07 13:55, Anonymous Nafnlaus segir...

Ef einhverjir vilja koma inní dagskrá þá getiði hringt í 693-1337 til að tékka á staðsetningu...

 
At 23/2/07 14:35, Anonymous Nafnlaus segir...

Og ef einhverjir eru að vinna til miðnættis og vilja koma eftir það þá að sjálfsögðu hringja þeir bara í okkur og hitta okkur! Það er alls ekkert leim, bara frekar töff myndi ég segja. Jafnvel alveg fáráranlega töff...

 

Skrifa ummæli

<< Home